Breyting á PHP stillingum með .htaccess
Lærðu hvernig þú getur breytt PHP-stillingum á borð við villuboð, upphleðslustærð, session timeout og memory limit með .htaccess-skrá á vefhýsingu þinni.
- Fela villuskilaboð
- Auka session lifetime (timeout)
- Auka hámarks upphleðslustærð
- Auka hámarks keyrslutíma
- Auka hámarksfjölda inntaksbreyta
- Slökkva á always populate raw post data
- Slökkva á OPcache
- Gildistími OPcache
- Memory limit
Þú getur stillt fjölmargar af sjálfgefnum stillingum PHP með .htaccess skrá.
Skráin er sett í möppuna þar sem þú vilt að breytingarnar eigi við. Breytingarnar eiga við allar skrár og undirmöppur. Athugið að skráin verður að heita ".htaccess" og ef hún er ekki til fyrir verður þú að búa hana til sjálf(ur), t.d. með FTP-forriti.
Þú getur séð lista yfir allar PHP stillingar hér: http://www.php.net/manual/en/ini.list.php
Sumar stillingar er einnig hægt að setja beint í PHP kóðann, með fallinu ini_set(). Nánari upplýsingar um stillingar o.fl. má finna í PHP handbókinni: http://php.net/manual/en/ini.list.php
Þú getur prófað hvort breytingarnar hafi verið settar rétt fyrir með því að skoða phpinfo(). Athugið að það er "Local-value" dálkurinn sem gildir hér.
Stillingarnar sem þú vilt breyta eiga einfaldlega að standa á einni línu í .htaccess skránni. Nokkrar vinsælar stillingar eru:
Fela villuskilaboð
php_flag display_errors off
Auka session lifetime (timeout)
php_value session.gc_maxlifetime 3600
Auka hámarks upphleðslustærð
php_value upload_max_filesize 512M
php_value post_max_size 512M
Auka hámarks keyrslutíma
php_value max_execution_time 600
Auka hámarksfjölda inntaksbreyta
php_value max_input_vars 20000
Slökkva á always populate raw post data
php_value always_populate_raw_post_data -1
Slökkva á OPcache
Við mælum EKKI með því að þú slökkvir á opcache, það getur gert heimasíðuna þína hæga.
php_flag opcache.enable off
Gildistími OPcache
php_value opcache.revalidate_freq 60
Memory limit
memory_limit er sjálfgefið stillt á 2048MB fyrir allar vefhýsingar, en í raun getur þú aldrei notað meira minni en það sem fylgir vefhýsingarpakkanum sem þú hefur valið.
Þú getur stillt memory_limit sjálf(ur). Ef þú þarft meira minni ættir þú að kanna hvort orsök minnsvandans sé ekki villa í kóðanum þínum, gagnagrunni eða sambærilegu, en ekki einfaldlega vegna þess að memory_limit sé 'of lágt' - því það er oft ekki tilfellið.
memory_limit er hægt að stilla frjálslega í gegnum .htaccess eða beint í PHP kóðanum með ini_set().
Sum CMS (t.d. WordPress) setja sjálf memory_limit og þá þarf að stilla memory_limit á sérstakan hátt. Sjá leiðbeiningarnar fyrir CMS-kerfinu sem þú notar.
Grein úr stuðningsflokkinum: PHP